Taekwondo Island
<language>is</language>
Ársþing Taekwondosambands Íslands 2011 - Framhaldið 
<description>Ársþing Taekwondosambands Íslands 2011  Framhaldið þann  9 júní kl 20:00.
Fundasalur E, 3.hæð ÍSÍ Engjavegi 6</description>
Fundasalur E, 3.hæð ÍSÍ Engjavegi 6
Ársþing TKÍ 2011
<description>Ársþing Taekwondosambands Íslands verður haldið í húsnæði ÍSÍ, við Engjaveg í Laugardal, fimmtudaginn 26. maí 2011 kl. 19.</description>
Landsliðsæfingar í Kyorugi
<description>Dagskrá æfinga næstu vikurnar:
Fimmtudagar: kl. 19.00 í Combat Gym, 2. hæð.
Laugardagar: kl. 11.30 í Ármanni.
Dagskrá æfinga næstu vikurnar:
Fimmtudagar: kl. 19.00 í Combat Gym, 2. hæð.
Laugardagar: kl. 11.30 í Ármanni.
Landsliðsæfingar í sparring
<description>Næstu landsliðsæfingar í sparring – Opnar úrtökur:
Laugardaginn 26. mars er æfing kl. 11.30 í Combat Gym.
Fimmtudaginn 31. mars er æfing kl. 19. Í Combat Gym.
Fimmtudaginn 31. mars er æfing kl. 19. Í Combat Gym.
Poomse úrtökuæfing 29.mars
<description>Ný úrtökuæfing fyrir poomse landsliðið verður haldin þriðjudaginn 29. mars klukkan 20:30 í ÍR heimilinu. 
Íslandsmót í sparring - Úrslit
<description>Íslandsmót í bardaga fór fram í Laugabóli þann 19. mars. Hér koma úrslit frá mótinu.</description>
Viðtal við Meisam Rafiei
<description>Þrefaldur heimsmeistari í taekwondo þorir ekki aftur til Íran af ótta við leyniþjónustuna. Hann hefur unnið tvenn gullverðlaun fyrir hönd Íslands. Langar til þess að búa á Íslandi og stefnir á að vinna Ólympíumeistaratitil fyrir hönd landsins.
Fyrsta æfing í poomsae
<description>Fyrsta æfing nýs landsliðsþjálfara í poomsae. Hulda mun halda sína fyrstu formlegu landsliðsæfingu á þriðjudaginn 15. mars kl. 20:30. 
Hulda mun halda sína fyrstu formlegu landsliðsæfingu á þriðjudaginn 15. mars kl. 20:30. 
Fyrsta æfing í sparring
<description>Fyrsta æfing nýs landsliðsþjálfara í sparring.  Meisam mun halda sína fyrstu formlegu landsliðsæfingu á laugardaginn 12. mars kl. 12.30.
<newstext>Fyrsta æfing nýs landsliðsþjálfara í sparring.
Meisam mun halda sína fyrstu formlegu landsliðsæfingu á laugardaginn 12. mars kl. 12.30.
Ráðning nýrra landsliðsþjálfara
<description>Hulda Rún Jónsdóttir nýr landsliðsþjálfari í Poomsae. 
Varðandi sparring landsliðið þá var ákveðið að óformlegur aðstoðarþjálfari og ráðgjafi fyrrverandi landsliðsþjálfara, Meisam Rafiei tæki við og stjórnaði liðinu út samningstíma fyrri þjálfara eða fram að ÓL 2012.</description>
Svartabeltispróf hjá Keflavík
<description>Fyrir mánuði síðan var haldið stórt svartbeltispróf hjá Taekwondo deild Keflavíkur. Master Paul Voigt (5.dan) var prófdómari, en hann hélt einnig sparring æfingabúðir í kringum prófið.</description>